|
Written by Gudny
|
|
Wednesday, 17 October 2007 |
|
Á þessari síðu er hægt að finna upplýsingar um hvernig sár gróa og hvaða hlutverki ýmsar frumur gegna í sárgræðslu. Einnig er hægt að finna upplýsingar um sárahreinsun , lausnir, efni og umbúðir sem notuð eru til að hreinsa sár, ýmsar óhefðbundnari aðferðir, brottnám á lífvana vef auk tengla á aðrar góðar síður um sár og sárameðferð. Í framtíðinni verður áhersla lögð á að koma áleiðis upplýsingum um hvaða þættir hvetja eða letja sárgræðslu, mismunandi sár og upplýsingar um mismunandi aðferðir sem hægt er að nota í sárameðferð. Ætlunin er að skapa lifandi síðu sem er í stöðugri uppvinnslu. Markmið síðunnar er hægt að nálgast hér og upplýsingar um hvernig síðan varð til er einnig hægt að skoða hér til hliðar. Síðunni er ekki ætlað að leiðbeina fagfólki um hvernig meðhöndla eigi sár. Hér verður aftur á móti hægt að fá upplýsingar um grunnatriði sem ættu að aðstoða hjúkrunarfræðinga og aðra sem koma að sárgræðslu við að taka ákvarðanir um sárameðferð byggða á rannsóknum og bestu gögnum sem völ er á. Eins og er er allt efni sem er á síðunni tekið úr lokaverkefni Guðnýjar Einarsdóttur (höfundar síðunnar) til BS prófs í hjúkrunarfræðideild en í framtíðinni vonast höfundur til þess að fleiri komi að. Ég vill endilega hvetja alla sem hafa áhuga á að hafa hafa samband við mig en það er hægt að senda mér tölvupóst gegnum hlekkinn hér að framan og í erfra vinstra horni síðunnar. Takk fyrir. ATHUGIÐ Vinsamlegast athugið að þeir sem hafa áhuga á að vitna í efni sem fyrirfinnst á síðunni eru vinsamlegast beðnir um að vitna í ofangreint lokaverkefni eða í heimasíðuna sjálfa. Lokaverkefnið er meðal annars hægt að nálgast á Þjóðarbókhlöðunni. Nákvæmari leiðbeiningar um hvernig ber að vitna í efni á síðunni munu vera settar inn síðar. |
|
Síđast uppfćrt ( Friday, 08 February 2008 )
|